Trölli.is logo
sdfgsdfg
Mynd: mast.is

Lifrapylsa innkölluð eftir að málmflís fannst í vöru

Smári skrifar — mið - 11. feb. 2026 14:55
Matvælatofnun hefur fengið upplýsingar frá Sláturfélagi Suðurlands um að fyrirtækið innkalli eina framleiðslulotu af soðinni lifrapylsu vegna þess að það fannst aðskotahlutur (málmflís) í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
  • Vöruheiti: Soðin lifrarpylsa.
  • Vörunúmer: 4490019
  • Lota: 03-033 (Síðasti notkunardagur: 04.03´26)
  • Framleiðandi: Sláturfélag Suðurlands svf, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík
  • Verslanir: Verslanir um allt land.
Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar, farga eða skila henni í næstu verslun.
Mynd: mast.is