Myndir: Rýmingaræfing í Grunnaskólunum, vel heppnuð á Siglufirði og Ólafsfirði
Smári skrifar — mið - 11. feb. 2026 12:58

Rýmingaræfingar voru haldnar í Grunnaskólanum á Siglufirði og í Grunnaskólanum á Ólafsfirði í morgun. Það var Slökkvilið Fjallabyggðar sem greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni.
Í tilkynningunni kemur fram að starfsfólk og nemendur hafi æft verklag við að rýma skólabyggingarnar ef til neyðarástands kæmi. Báðar æfingar gengu vel og gekk rýming samkvæmt áætlun.
Að æfingum loknum fengu nemendur og starfsfólk tækifæri til að skoða tækjabúnað viðbragðsaðila í Fjallabyggð sem tóku þátt í æfingunni. Sú heimsókn vakti athygli og nýttist vel til fræðslu.
Við sama tækifæri var veitt viðurkenning vegna eldvarnargetraunar á vegum Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Slökkviliðið heimsótti 3. bekk í desember síðastliðnum og tóku nemendur þar þátt í getrauninni. Ólafur Orri Sigtryggsson var dreginn út og hlaut viðurkenningu fyrir að hafa svarað öllum spurningum rétt.
Myndir: facebook / Slökkvilið Fjallabyggðar
