Nýr kvennakór Fjallabyggðar steig á svið með Ástarpungunum
Smári skrifar — mið - 11. feb. 2026 12:20
Við hátíðlega athöfn í Alþýðuhúsinu á Siglufirði síðastliðinn föstudag voru Ástarpungarnir útnefndir Bæjarlistamenn Fjallabyggðar 2026, eins og áður hefur verið greint frá á trolli.is.
Af því tilefni steig nýstofnaður kvennakór Fjallabyggðar, Hytturnar, á svið og flutti lag með Ástarpungunum við góðar undirtektir. Ástarpungarnir og Hytturnar fluttu lagið Einhvers staðar einhvern tímann. Lag og texti eru eftir Magnús Eiríksson heitinn og kom það upphaflega út á plötunni Mannakorn – Brottför kl. 8 árið 1979.
Flutningurinn vakti athygli og var stemningin hlý og hátíðleg í salnum. Hér að neðan má hlusta á upptöku sem Ástarpungarnir birtu á Facebook-síðu sinni.

Forsíðumynd: skjáskot úr myndbandi
