Opið hús hjá Björgunarsveitinni Strákum í dag í tilefni 112 dagsins
Smári skrifar — mið - 11. feb. 2026 12:41
Opið hús verður hjá Björgunarsveitinni Strákum að Tjarnargötu á Siglufirði í dag frá klukkan 17 til 19 í tilefni 112 dagsins. Gestum gefst kostur á að skoða tæki og búnað sveitarinnar og prófa vinsæla klifurvegginn sem verður opinn á meðan á heimsókninni stendur.
Léttar veitingar verða í boði fyrir börn og fullorðna og eru allir velkomnir að líta við.
Mynd: facebook / Björgunarsveitin Strákar
