Símkerfi HSN á Norðurlandi liggur niðri í 15 mínútur í hádeginu
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — mið - 11. feb. 2026 09:35
Í dag, miðvikudaginn 11. febrúar á milli 12.30 og 12.45 (fimmtán mínútur) mun símkerfi á öllum starfstöðvum HSN liggja niðri vegna tæknilegrar uppfærslu.
Fólki er bent á að alltaf er hægt að senda skilaboð eða óska eftir lyfjaendurnýjun á heilsuvera.is.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér. Í neyð skal alltaf hringja í síma 112.
